Öppdeit

Jæja þá er komið að mánaðarlegri tilkynningaskyldu!       

 

Svampur Sveinsson búningurinn minn tóks bara vel upp. Mér láðist samt aðeins að spá í því hversu ógeðlega óþægilegt það er að dúsa í pappakassa heilt kvöld. Bakið þarf að vera alveg þráðbeint öllum stundum og svo var smá hönnunargalli á búningnum sem lýsti sér þannig að þegar ég gerði tilraun til að setjast niður þá náttúrulega lyftist kassinn upp þannig að bara augun stóðu upp úr og hendurnar lyftust upp. Þannig að ég varð að gjöra svo vel að borða standandi! Louisa var vínberjaklasi og við eyddum dágóðum tíma í að festa grænar blöðrur á hana. Hún hreyfði sig eins og hún væri á tunglinu allt kvöldið af ótta við að sprengja blöðrurnar. Einn partygestur kom sem Jane Austen. Búningurinn samanstóð af safaríhatti og gömlukonukjól þannig að menn áttu í töluverðum erfiðleikum með að átta sig á hver þetta væri. Það hjálpaði heldur ekki til að viðkomandi er indversk og það leiddi okkur inn á bandvitlausa leið í giskinu!       

 

Svo hélt ég upp á afmælið mitt í lok nóv. Hélt svona lady-boð heima enda ekki við hæfi giftra kvenna að stunda klúbba eða öldurhús borgarinnar. Ég var með harðsperrur í hlægju/bros vöðvunum í viku á eftir! Einhverjir karlmenn slæddust svo í hópinn þegar leið á kvöldið en ég held þeir hafi verið eitthvað skelkaðir í félagsskap allra þessara ladies sem voru ansi háværar!       

 

Síðustu helgina í nóvember hittist föndurklúbbur Pétur og Jóns svo í þjóðlegum klæðnaði (lopapeysu!) og við bjuggum til piparkökur og aðventukransa. Hér í Lundúnum eru menn ekki á neinum föndurbuxum þannig að við þurftum að notast við hugmyndaflugið fyrir kransagerðina en ég held þetta hafi bara heppnast voða vel hjá okkur. Ég keypti hnetur til að skreyta kransana með - heil 2 kg - en ég held að við höfum notað ca. 0.2 kg af því...allar skreytingar heima hjá okkur eru því að mestu uppbyggðar með hnetuafgöngum! Að sjálfsögðu vorum við með íslensk jólalög sem við síðan hömuðumst við að þýða yfir á ensku fyrir útlensku "íbúðar-vinina" hennar Sögu. Þetta meikaði allt voða lítið sense fyrir þeim: "under the bicycle christmas tree is a christmas bicylce. I wonder if it´s a christmas bicycle under the christmas tree", "no no not during Christmas (hvað á annars ekki að gera um jólin??? Ég hef aldrei náð þessu alveg...)", "I want Christmas snow in my Christmas shoe"....já já voða fínt allt saman! Koki galdraði fram 178 rétta kvöldmáltíð úr öllu sem fyrirfannst í ísskápnum og sænska stelpan bjó til rammsterkt jólaöl og saffranbollur. Voðalega jólalegt og fínt!       

 

Í síðustu viku var jólapartý í vinnunni með tilheyrandi vandræðaleika og dramatík :) Einn af eldri starfsmönnunum keypti svitalyktareyðandi sápu fyrir einstaklega móðgunargjarna manneskju í Secret Santa - það var að sjálfsögðu ekki gert af yfirlögðu ráði heldur hafði hann farið inn í Crabtree&Evelyn sem er svona konubúð og keypt það fyrsta sem hann sá. Var ekkert að lesa smáa letrið...sem viðtakandinn hins vegar gerði og tók mjög persónulega. Það var frekar fyndið. Ég fékk Swiss Army Knife sem ég þarf einmitt að muna eftir að fjarlægja úr töskunni minni áður en ég flýg heim! Gæti verið stimpluð sem "gang member" annars!       

 

Að lokum var svo jólapartý hjá dansinum í gær sem var einstaklega gaman. Maður hefði haldið að við hefðum ekki um mikið að tala fyrst við hittumst svona oft en aðal vandamálið er yfirleitt að fá þögn á hópinn. Það þarf eitthvað að ræða málin svo svakalega mikið :) Og hafa læti - það er nauðsynlegt.       

 

Áf vídersen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf svo gaman að finna nýja bloggfærslu frá þér, Hildur. Dásamlegur húmor!

Kær kveðja, JL

Jónína L. (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 00:37

2 Smámynd: Hildur Einarsdóttir

Jej ;) Takk takk =oP

Hildur Einarsdóttir, 15.12.2008 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hildur Einarsdóttir
Hildur Einarsdóttir
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 10840

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband