Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

Komin heim (Londres) aftur eftir vel heppnaða ferð heim-heim (Rvk). Tilefnið var ferming litlu systur sem gekk svakalega vel og hún stóð sig eins og hetja og var svo fín og sæt og æðisleg. Þetta var svona ör-ferð sem leið allt of hratt. Ég náði reyndar að hitta alla ættingja og fjölskylduvini á einu bretti í veislunni. Ég stóð í ströngu við að flakka á milli fólks og spjalla til að ná að kovera alla partýgestina. Þetta var svona pínu eins og speed-dating (fyrir utan náttúrulega deit-partinn), smá spjall og svo ding, skipta um spjallfélaga. Einhverjir sem sáu mig á undan systur minni höfðu á orði hvað ég væri nú ferlega fullorðinsleg...héldu sem sagt að ég væri fermingarbarnið (!?!?!?!). Common sko! Mamma segir að ég sé meira að segja komin með hrukkur...sem að hennar sögn hafa myndast því ég setji upp svo asnalegan svip þegar ég hugsa mikið eða skilji ekki eitthvað...sem hlýtur þá að gerast ansi oft fyrst þessar hrukkur eru farnar að láta sjá sig strax! Það er alltaf notalegt að koma heim-heim. Svo fær maður alveg fríkeypis ráð og áminningar í massavís í boði hússins. "ertu búin að borða eitthvað?", "þú verður að borða eitthvað", "ertu nógu vel klædd?", "þú verður að klæða þig vel, það er svo kalt úti", "ertu búin að sofa nóg?" og svo framvegis. Þetta er alveg frábært, voða gott að fá svona tips...ég borða sko aldrei neitt þegar ég er hérna úti, ég gleymi því alltaf!       

 

Það var líka ljúft að koma aftur heim...í frystikistinuna. Jább, 15.mars rann upp í Bretaveldi og þar með er slökkt á öllu central heating í húsunum og skrúfað fyrir alla ofna takk fyrir. Það hefur greinilega engin áhrif á þessa reglu að það er óvenju kalt í Lundúnum fyrir þennan árstíma, ekki nema rétt yfir frostmarki og engan veginn viðeigandi að hafa ókynnt hús. Nei nei, það er kominn 15.mars og þá skal slökkt á ofnunum. Punktur. Þannig að ég ég dró aftur fram flísbuxur, flíssokka og flíspeysu til að sofa í, kveikti varðeld inní stofu og við sungum Sá ég spóa í keðjusöng eins og venjan er í útilegum. Hélt ég myndi látast úr kulda í morgun þegar ég þurfti að skríða fram úr. brrrrrrrrrrrr       

 

Ég mætti með íslenskt nammi í vinnuna eins og lög gera ráð fyrir þegar einhver fer til útlanda. Ruslafatan mín er full af hálfétnu kúlusúkki og drakúla brjóstsykrum. Sló sem sagt ekki í gegn - lakkrís er greinilega ekki málið hérna. Sem er fínt, meira fyrir mig ;o) Jej!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk æðislega fyrir mig! hahaha það urðu nokkrir eftirmynnilegir miskilningar í veislunni, einhver spurði: bíddu guð, er fermingarbarnið orðið svona stórt?(horfandi á þig) mamma stekkur á móti: nei,nei!...það er miklu stærra!! híhí

Sólveig Ásta (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 21:28

2 Smámynd: Hildur Einarsdóttir

hahahaha!

Hildur Einarsdóttir, 27.3.2008 kl. 09:44

3 identicon

Hahaha ;)

Ég veit ekki hvort hún ömmusystir ykkar hafi haft einhverja aðra en mig í huga þegar hún sagði " ji, er þetta hún Agnes - orðin svona stór?"

Agnes (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 13:07

4 Smámynd: Hildur Einarsdóttir

hehehe, já sennilega...sérstaklega í ljósi þess að hún hefur bara þekkt þig eftir að þú varðst svona "stór" og fullorðin ;o)

Hildur Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hildur Einarsdóttir
Hildur Einarsdóttir
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 10840

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband