9.1.2009 | 12:05
Krípí gaur...
Hér kemur mitt árlega kvart um kuldann í húsakynnum Bretlands. Jesús! Ég hef ákveðið að hafa þetta bara stutt og hnitmiðað þetta árið. Hér er skítakuldi, úti sem inni. Í morgun dundaði ég mér við að losna við frostrósir á skrifstofuglugganum mínum - sem sagt innan á glugganum. Afi minn var í sveit í rafmagnslausum og vatnslausum torfbæ. Hann segir að þar hafi aldrei nokkurn tímann verið kalt, ekki einu sinni um jólin. Spurning um að taka svoleiðis húsakynni bara upp aftur - allavega er þetta ekki alveg að virka hérna! brrrrrrrrrrr
Við flugum heim með Icelandexpress fyrir jólin. Þeir höfðu skreytt vélina að innan með því að setja lítinn pistil um hvern íslenskan jólasvein á lokin á yfir-höfuð-kompunum. Ég skil punktinn, að kynna þessa íslensku hefð fyrir útlendingunum. Fín pæling. En þetta var eiginlega meira krípí en áhugavert...þaðan sem við sátum gátum við til dæmis lesið okkur til um Meet Hook og Window Peeper (GARG!). Myndin af kjötkróki gaf til kynna að hann hefði verið með krók á annarri hendi - ég vissi aldrei að hann hefði verið einhentur!!! Ég veit svo ekki hvort eitthvað misfórst í þýðingunum hjá þeim en ég man heldur ekki til þess að kjötkrókur hafi étið kjöt þangað til hann gubbaði og sé engan sérstakan tilgang í að taka það sérstaklega fram - að hann hefði borðað mikið kjöt hefði verið alveg nóg! Það þarf ekki að hafa mörg orð um Window Peeper sem "peeps through every window"...það er náttúrulega BARA krípí! Er ekki bara fínt að halda þessum jólasveinum út af fyrir okkur???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2008 | 17:00
Öppdeit
Jæja þá er komið að mánaðarlegri tilkynningaskyldu!
Svampur Sveinsson búningurinn minn tóks bara vel upp. Mér láðist samt aðeins að spá í því hversu ógeðlega óþægilegt það er að dúsa í pappakassa heilt kvöld. Bakið þarf að vera alveg þráðbeint öllum stundum og svo var smá hönnunargalli á búningnum sem lýsti sér þannig að þegar ég gerði tilraun til að setjast niður þá náttúrulega lyftist kassinn upp þannig að bara augun stóðu upp úr og hendurnar lyftust upp. Þannig að ég varð að gjöra svo vel að borða standandi! Louisa var vínberjaklasi og við eyddum dágóðum tíma í að festa grænar blöðrur á hana. Hún hreyfði sig eins og hún væri á tunglinu allt kvöldið af ótta við að sprengja blöðrurnar. Einn partygestur kom sem Jane Austen. Búningurinn samanstóð af safaríhatti og gömlukonukjól þannig að menn áttu í töluverðum erfiðleikum með að átta sig á hver þetta væri. Það hjálpaði heldur ekki til að viðkomandi er indversk og það leiddi okkur inn á bandvitlausa leið í giskinu!
Svo hélt ég upp á afmælið mitt í lok nóv. Hélt svona lady-boð heima enda ekki við hæfi giftra kvenna að stunda klúbba eða öldurhús borgarinnar. Ég var með harðsperrur í hlægju/bros vöðvunum í viku á eftir! Einhverjir karlmenn slæddust svo í hópinn þegar leið á kvöldið en ég held þeir hafi verið eitthvað skelkaðir í félagsskap allra þessara ladies sem voru ansi háværar!
Síðustu helgina í nóvember hittist föndurklúbbur Pétur og Jóns svo í þjóðlegum klæðnaði (lopapeysu!) og við bjuggum til piparkökur og aðventukransa. Hér í Lundúnum eru menn ekki á neinum föndurbuxum þannig að við þurftum að notast við hugmyndaflugið fyrir kransagerðina en ég held þetta hafi bara heppnast voða vel hjá okkur. Ég keypti hnetur til að skreyta kransana með - heil 2 kg - en ég held að við höfum notað ca. 0.2 kg af því...allar skreytingar heima hjá okkur eru því að mestu uppbyggðar með hnetuafgöngum! Að sjálfsögðu vorum við með íslensk jólalög sem við síðan hömuðumst við að þýða yfir á ensku fyrir útlensku "íbúðar-vinina" hennar Sögu. Þetta meikaði allt voða lítið sense fyrir þeim: "under the bicycle christmas tree is a christmas bicylce. I wonder if it´s a christmas bicycle under the christmas tree", "no no not during Christmas (hvað á annars ekki að gera um jólin??? Ég hef aldrei náð þessu alveg...)", "I want Christmas snow in my Christmas shoe"....já já voða fínt allt saman! Koki galdraði fram 178 rétta kvöldmáltíð úr öllu sem fyrirfannst í ísskápnum og sænska stelpan bjó til rammsterkt jólaöl og saffranbollur. Voðalega jólalegt og fínt!
Í síðustu viku var jólapartý í vinnunni með tilheyrandi vandræðaleika og dramatík :) Einn af eldri starfsmönnunum keypti svitalyktareyðandi sápu fyrir einstaklega móðgunargjarna manneskju í Secret Santa - það var að sjálfsögðu ekki gert af yfirlögðu ráði heldur hafði hann farið inn í Crabtree&Evelyn sem er svona konubúð og keypt það fyrsta sem hann sá. Var ekkert að lesa smáa letrið...sem viðtakandinn hins vegar gerði og tók mjög persónulega. Það var frekar fyndið. Ég fékk Swiss Army Knife sem ég þarf einmitt að muna eftir að fjarlægja úr töskunni minni áður en ég flýg heim! Gæti verið stimpluð sem "gang member" annars!
Að lokum var svo jólapartý hjá dansinum í gær sem var einstaklega gaman. Maður hefði haldið að við hefðum ekki um mikið að tala fyrst við hittumst svona oft en aðal vandamálið er yfirleitt að fá þögn á hópinn. Það þarf eitthvað að ræða málin svo svakalega mikið :) Og hafa læti - það er nauðsynlegt.
Áf vídersen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2008 | 15:50
þetta númer tvö...
Ég þarf að stundum eiga samskipti við konu sem ber eftirnafnið Puu (borið fram pú). Fólki með leikskólahúmorinn í lagi (eins og mér) finnst þetta ofsalega fyndið. Ég var hins vegar við hláturdauðans dyr í dag þegar ég heyrði fornafnið hennar. Hún er kínversk en eins og margir kínverjar, valdi sér enskt nafn sem hún notar alltaf. Maður hefði haldið að manneskja með svona eineltislegt eftirnafn passaði sig á að velja þá gott fornafn sem gæti ekki boðið upp á neina brandara....til dæmis eitthvað annað en Aníta!!! Of fyndið. (til að koma í veg fyrir fyrstu síðu hitt á google þá hef ég breytt aðeins út af stafsetningunni...)
Halloween fer að skella á þannig að ég hef hafið undirbúning fyrir búning þessa árs. Kassi og málning komin í hús, á bara eftir að fjárfesta í gulum sokkabuxum. Louisa ætlar að vera vínberjaklasi - sem þýðir að við þurfum að blása upp óendanlegt magn af grænum blöðrum. Stuð!
Dansinn byrjaði fyrir alvöru síðasta sunnudag eftir gott sumarfrí. Við vorum að frá morgni til kvölds þannig að ég er enn ansi stirð og aum - fer stynjandi upp og niður stiga. Allir vöðvar í verkfalli. Þetta var svaka gaman - erum með ótrúlega stóra hópa sem þurfti að prófa og skipta niður. Svo erum við með opna tíma þangað sem hver sem er getur komið og dansað. Þangað komu til dæmis mæðgur. Stelpan er heyrnalaus en les varir og dansar nálægt hátölurum til að finna víbringinn. Hún kom svo til mín eftir tímann og spurði hvaðan ég væri. Ég svaraði því en spurði hvernig hún vissi að ég væri ekki bresk - hún sá það á hvernig ég ber "errin" mín fram!!! Magnað! Þarna var líka önnur unglingsstelpa sem hafði eftir mikið puð náð að plata mömmu sína og ömmu með sér í danstíma (furðuleg árátta!). Hún sagðist hafa verið sigri hrósandi yfir þessu þangað til eldri mæðgurnar fóru að versla sér dress fyrir þessa samkomu. Við erum að tala um fúllblown Jane Fonda átfitt - bleikar glans-leggings og mjöhög hátt skorinn balletbol yfir. Smaaaart! ;) Þær voru algjörar bombur - unglingurinn var ekki alveg eins imponeruð yfir þessu, hélt sig í hæfilegri fjarlægð allan tímann ;)
Farin í prjónaklúbb til Sögu - megakúl, ég veit!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2008 | 15:21
Tilraun 2
Jæja Jói, ég stend við strengd heit - prófum þetta aftur ;)
Gaman að vera Íslendingur í Bretlandi í dag. Það eru nokkrir í vinnunni minni ósáttir við mig persónulega því þeir eiga peninga í Icesafe. Einn gengur nú svo langt að vera massívt pirraður út í mig af þessum sökum...ansi hart að þurfa að taka persónulega ábyrgð á svona málum finnst mér. Ég hef grun um að þetta sé sama lið og skildi stressbolta-hvalinn minn eftir á skrifborðinu mínu með rakvélablað í gegnum sig miðjan daginn eftir að Íslendingar leyfðu hvalveiðar á nýjan leik. Gott að vera svona í forsvari fyrir allt sem Ísland tekur sér fyrir hendur ;) Lógískt allt saman.
Hér var fjallað um stöðu Íslands í kvöldfréttum í gær. Svo var svissað yfir á Geir í beinni á blaðamannafundinum í Reykjavík sem var einstaklega áhugavert fyrir breska áhorfendur í ljósi þess að ekki hafði tekist að grafa neinn upp í höfuðstöðvum BBC sem talaði íslensku og því var Geir ekkert þýddur...talaði bara á íslensku. Þeir voru snöggir að snúa sér að öðru.
Skrifstofan mín er með stórum gluggum sem vísa inn í bygginguna sjálfa. Fyrir utan gluggann minn er maður að gera við einhver vatnsrör í veggnum. Maðurinn er klæddur í hjólabuxur (jess, svona spandex smokkabuxur) og í matching spandex bol við. Svo er hann bara í sportsokkum og strigaskóm. Í október. Í vinnunni. Innan um annað fólk. Ekki hjól í sjónmáli. Smart. Eitthvað held ég að aumingja maðurinn hafi tekið glottin til sín...nú er hann búinn að skella hjólahjálminum á sig og vinnur hörðum höndum við að laga vatnsrörin okkar...vel varinn með straumlínulaga hjólahjálm á hausnum. Held að tilgangurinn hafi verið að undirstrika að hann ferðist sko um á hjóli og því sé hann í þessari múderingu...æh ég veit ekki, þetta er bara of fyndið.
xxx H
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2008 | 10:12
Ooooops!
Það er allt eða ekkert á þessum bæ. Fyrir tveimur vikum vorum við að krókna úr kulda í íbúðinni, Agnes gestur svaf í öllum þeim fötum sem hún kom með og fékk sæng og teppi og tvo hitablásara til að geta sofið í Frystikistunni. Nú er ólíft í Gufubaðinu vegna hita. Við erum að kafna! Þess má kannski geta að hér er ekki nema 24 stiga hiti en það virðist vera nóg fyrir svona óhitaþolna Íslendinga. Ég á eftir að standa mig vel í regnskógum Malasíu í júlí. Jamm.
Svo er ég að verða frænka. Svona óskyld samt. Hildur frænka er nefnilega í hálfu starfi við að sinna Óléttunni sem vinnur með mér. Reima skó, ná í súkkulaði, halda á pokum, sinna hormónagrátköstum etc. Og fyrir vikið fæ ég að vera frænka ;) Jej, voða gaman! Lítill strákur á leiðinni - kannski ég splæsi svona fínum höttum á hana þegar drengurinn kemur í heiminn (nei svona í alvörunni, HVAÐA bull er þetta!?!?!?!) http://www.englabossar.is/gallery.php?full=1&id=37
Gerði merkilega uppgötvun um daginn. Louisa spurði mig hvort ég hefði horft á einhvern þátt í sjónvarpinu og ég svaraði að ég hefði horft á hann svona "with one eye"... Af undrunarsvipnum á henni dró ég þá ályktun að það að horfa á eitthvað með öðru auganu er ekki enskt orðatiltæki!
Jæja, ég er eiginlega upptekin við að roðna þannig að segi þetta bara gott í bili!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.4.2008 | 15:46
Superman
Jájá, sprauturnar gengu eins og í sögu, og samkvæmt planinu mínu var ég ofur hress og ekkert föl! Til þess að sanna fyrir mér og öðrum að ég væri mega hetja fór ég út að hlaupa eftir vinnu. Það var ekki gáfulegt því ég var í raun alveg að deyja í hendinni en hljóp nú samt og dó svo. Sniðug.
Við fórum á Hamstead Heath um helgina í góða veðrinu. Það var frábært. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er þetta eins og risavaxin Öskjuhlíð í norður London - ekki eins og týpískur sléttur og vel sleginn London garður heldur er svona meiri þúfufýlingur í gangi þarna. Mjög næs. Svo sér maður yfir alla borgina. Fullt af fólki, nóg af karlmönnum í Speedo (mitt einka uppáhald) og svo er þetta einhvers konar hang out place fyrir flugdrekafljúgara (eða hvað sem maður kallar þá). Alveg brilljant og fínt fyrir tanið. Svo klæddum við okkur í leiðsögumannagallann á sunnudaginn og þræddum alla helstu túrista staðina í London og bunuðum út úr okkur öllum þeim svakalega fróðleik sem við búum að (yfir?). Svaka gaman, svo gaman að fá gesti að heiman!
Grrr, ég þarf nauðsynlega að taka jólalögin út af ipodinum mínum!
Ég á hot date með Sögu á eftir. Við erum ekki mjög góðar að ákveða hvað við viljum taka okkur fyrir hendur þegar við hittumst - valkvíðinn fer alveg með mann hérna - allt of margt í boði! Ef við bara hefðum einhvern til að skrifa áætlun niður fyrir okkur þá værum við sko í góðum málum....*hint* Sara farið þið ekki að koma í heimsókn? Því miður er ekkert sing-along í Prince Charles bíóinu í kvöld en það verður á planinu að fara á svoleiðis (svona eins og í Dirty Dancing þegar þau fóru á Rocky Horror sing-along). Ég mun, að venju, vera tryllt í mæminu. Ætli við endum ekki með að raða í okkur kökum? Ég er svo svakalega dugleg í svoleiðis nefnilega ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 10:48
Sprauti spraut
Í dag fer ég í bólusetningar fyrir Malasíuferðina. Ég ætla að gera mitt allra besta til að láta ekki líða yfir mig...svona for a change. Ég er búin að vera að sæka mig upp í þetta, ætla að labba rjóð í kinnum út frá lækninun, án þess að hafa verið keyrð um á sjúkrarúmi og fengið líter af djús og nammi. Það er svo einstaklega vandræðalegt eitthvað. Ég er ekkert hrædd við sprautur, ekki neitt og get alveg horft á þær fara inní æðarnar og allt svoleiðis en undirmeðvitundin hlýtur að vera alveg skelfilega hrædd við sprautur því það svoleiðis steinlíður alltaf yfir mig, hvort sem verið að sprauta einhverju inn eða taka blóð. Ég ligg alltaf, alveg hvít og í ruglinu. Reyndar steinleið líka yfir mig þegar ég prófaði fyrst að setja í mig eyrnalokka - þegar ég skipti úr skotlokkunum yfir í aðra. Þá náði ég toppnum í aumingjaskap. Lá eins og skata þegar Sigurjón kom heim. En í dag mun verða breyting á, ég ætla að sitja og taka þessu eins og venjulegt fólk!
Agnes mín kom í óvænta heimsókn um síðustu helgi. Þetta var svona skyndiákvörðun hjá okkur sem þýddi náttúrulega að ég þurfti að taka til í skyndi! Við höfðum það alveg obboðslega huggulegt og gott. Agnes er náttúrulega svo trylltur jammari að það var erfitt fyrir gamalmenni eins og mig að halda í við það tryllta líferni sem hún kýs að lifa en ég náði með herkjum að róa hana aðeins niður þessa daga. Við hittum Ayish í brunch á sunnudeginum og þar sátum við við hliðina á Helenu Peabody úr L-word!!!! Mér þótti þetta stórmerkilegt en stelpurnar voru ekki eins "imponeraðar" (ég hyggst alfarið tala eins og amma mín). Agnes horfir bara á þætti sem fjalla um lækna og hjúkkur og vissi því ekkert hvað ég var að tala um. Ayish, sem er ennþá að jafna sig eftir að hafa séð óritskoðaðan þátt af Sex and the City (þeir eru ekki mikið í að sýna dónalegt þarna í Malasíu), roðnaði niður í tær þegar ég útskýrði fyrir henni hvaða þáttur þetta væri. Já nei, hún kannaðist ekki við að hafa horft á svoleiðis sjónvarpsefni. En vá, þessi kona er svo ótrúlega falleg!!! Hún var í mega fýlu, en hún var samt sæt.
Ég þarf að skipta um tösku. Ég arka um með hálft hús á öxlinni. Svona Mary Poppins tösku sem allt kemst ofan í...ef maður treður nógu mikið. Ég þarf ekkert allt þetta dót. Hér kemur dæmi um það sem leynist í "hand"töskunni minni. 4 stykki gloss, öll í sama lit (hentugt), húfa og leðurhandskar (hér er 17 stiga hiti og sól...meira að segja ég þarf ekki svona mikil föt), tvær regnhlífar (ef ég verð tvöföld einhvern tímann), vasareiknir (gæti komið sér vel undir einhverjum kringumstæðum) og nestisbox. Ég þyrfti bara að skipta þessu út fyrir selskapsveski, þá væru öll mín vandamál úr sögunni!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2008 | 11:41
Prrrrrump
Einn framkvæmdarstjórinn okkar þurfti að koma með barnabarnið sitt í vinnuna um daginn og þurfti sjálfur að vera á fundum allan daginn þannig að strákurinn fékk að vera hjá okkur hinum á meðan. Eins og verkfræðiþenkjandi fólki sæmir bjuggum við til vaktaplan fyrir daginn þar sem fólk fékk vaktir með Patreki eftir því hvenær við vorum ekki á fundum. Þar sem ég er sú eina sem virðist hafa komist í návígi við börn fékk ég tvær vaktir: fyrstu vakt og síðustu vakt. Þetta þykir ofsalega fyndið, það er að ég hafi eytt unglingsárunum í að passa börn...hér er normið nefnilega að hafa eytt öllum sínum unglingsfrítímum í að forrita í Pascal og spila Quake. Allt annað þykir voða hallærislegt!
Patrekur er fjögra ára. Á prumpu - og kúka brandara aldrinum. Ferlega fyndið. Honum finnst augljóslega ekkert í veröldinni jafn fyndið og þessir tveir hlutir. Namm.
Ég stakk uppá því við hann að við finndum myndir á netinu sem ég gæti prentað út og hann gæti svo litað (svona litabókamyndir) og við gætum svo hengt þær upp á vegg á skrifstofunni minni (bad idea). Þetta leist mínum manni vel á og við völdum ansi margar myndir og prentuðum út. Ég var búin að finna tréliti sem ég bauð uppá en nei nei, Patrekur vildi enga liti. Bara brúnan og svartan penna. Ég gat nú ekki útvegað brúnan penna þannig að hann sættist á brúnan trélit og svartan penna. Svo kom ég honum fyrir á skrifborði við hliðina á mér og hann hófst handa við litun á meðan ég vann. Þegar Patrekur var búinn að fara í gegnum ansi margar myndir fékk ég að sjá afraksturinn. Dó úr hlátri...inní mér. Fyrir aftan botninn á hverri fígúru á hverri einustu mynd var brúnt ský. Prumpuský sko. Næs. Svo hafði hann teiknað litla kúluhatta á alla. Frekar random. Þeir sem voru með hatta fyrir, eins og til dæmis Andrés Önd, fengu bara kúluhatt ofan á sinn venjulega hatt...og að sjálfsögðu var Andrés að prumpa eins og allir aðrir. Á nokkrum myndum voru engar persónur heldur bara hús úr Latabæ en húsin prumpuðu fyrir því og fengu kúluhatta. Svo hófst barnið handa við að hengja þetta allt saman upp á vegg hjá mér þannig að skrifstofan er nú veggfóðruð með prumpandi hlutum (fólki og húsum) með kúluhatta! Hef "made a mental note to self" að taka þetta niður áður en kínverska sendinefndin kemur á morgun. Ég er ekki viss um að slíkir eðal herramenn kunni að meta svona...erm..."list".
Þegar afinn kom að sækja listamanninn í lok dags spurði Patrekur mig hvað pabbi minn væri að gera. Ég sagðist halda að hann væri í vinnunni sinni. Þá klappaði dvergurinn mér á bakið og sagði mjög knowingly og með mikilli samúð að hann væri viss um að pabbi minn kæmi örugglega bráðum að sækja mig, hann þyrfti bara að vinna svolítið lengur...??? Ég bíð þá bara eftir að verða sótt ;o)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 16:02
Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Komin heim (Londres) aftur eftir vel heppnaða ferð heim-heim (Rvk). Tilefnið var ferming litlu systur sem gekk svakalega vel og hún stóð sig eins og hetja og var svo fín og sæt og æðisleg. Þetta var svona ör-ferð sem leið allt of hratt. Ég náði reyndar að hitta alla ættingja og fjölskylduvini á einu bretti í veislunni. Ég stóð í ströngu við að flakka á milli fólks og spjalla til að ná að kovera alla partýgestina. Þetta var svona pínu eins og speed-dating (fyrir utan náttúrulega deit-partinn), smá spjall og svo ding, skipta um spjallfélaga. Einhverjir sem sáu mig á undan systur minni höfðu á orði hvað ég væri nú ferlega fullorðinsleg...héldu sem sagt að ég væri fermingarbarnið (!?!?!?!). Common sko! Mamma segir að ég sé meira að segja komin með hrukkur...sem að hennar sögn hafa myndast því ég setji upp svo asnalegan svip þegar ég hugsa mikið eða skilji ekki eitthvað...sem hlýtur þá að gerast ansi oft fyrst þessar hrukkur eru farnar að láta sjá sig strax! Það er alltaf notalegt að koma heim-heim. Svo fær maður alveg fríkeypis ráð og áminningar í massavís í boði hússins. "ertu búin að borða eitthvað?", "þú verður að borða eitthvað", "ertu nógu vel klædd?", "þú verður að klæða þig vel, það er svo kalt úti", "ertu búin að sofa nóg?" og svo framvegis. Þetta er alveg frábært, voða gott að fá svona tips...ég borða sko aldrei neitt þegar ég er hérna úti, ég gleymi því alltaf!
Það var líka ljúft að koma aftur heim...í frystikistinuna. Jább, 15.mars rann upp í Bretaveldi og þar með er slökkt á öllu central heating í húsunum og skrúfað fyrir alla ofna takk fyrir. Það hefur greinilega engin áhrif á þessa reglu að það er óvenju kalt í Lundúnum fyrir þennan árstíma, ekki nema rétt yfir frostmarki og engan veginn viðeigandi að hafa ókynnt hús. Nei nei, það er kominn 15.mars og þá skal slökkt á ofnunum. Punktur. Þannig að ég ég dró aftur fram flísbuxur, flíssokka og flíspeysu til að sofa í, kveikti varðeld inní stofu og við sungum Sá ég spóa í keðjusöng eins og venjan er í útilegum. Hélt ég myndi látast úr kulda í morgun þegar ég þurfti að skríða fram úr. brrrrrrrrrrrr
Ég mætti með íslenskt nammi í vinnuna eins og lög gera ráð fyrir þegar einhver fer til útlanda. Ruslafatan mín er full af hálfétnu kúlusúkki og drakúla brjóstsykrum. Sló sem sagt ekki í gegn - lakkrís er greinilega ekki málið hérna. Sem er fínt, meira fyrir mig ;o) Jej!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 10768
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

